Stofnskráin
Fyrirtæki sem sækja um aðild að Stofnskrá fyrir sjálfbær þrif hafa fengið óháða sannprófun þess að þau taki tillit til sjálfbærni við þróun og framleiðslu vöru sinnar. Þau tryggja að vörur þeirra séu framleiddar með öruggum hætti og tillit tekið til umhverfisins með skilvirkari notkun efna og náttúruauðlinda (t.d. vatns). Þau tryggja það einnig með skilvirkri stjórnun að vörurnar sem þau framleiða séu öruggar til fyrirhugaðrar notkunar. Markmiðið er að stefna að sjálfbærari þróun og neyslumynstri.
Öll fyrirtæki sem fylgja áætluninni láta í té gögn sem gera kleift að meta heildarframmistöðu sápu, hreinsiefna og viðhaldsvöruiðnaðar með tilliti til efnahags-, þjóðfélags- og umhverfisþátta. Þau skuldbinda sig einnig til að veita betri öryggisupplýsingar fyrir neytendur og viðskiptavini.
Til að fá frekari upplýsingar um þetta framtak, vinsamlega skrunaðu gegnum þetta vefsetur eða hafðu samband við samtök iðnaðarins í landi þínu eða beint við fyrirtækið.
|