Hreinlætisvörur fyrir heimili eru öruggar þegar þær eru notaðar og geymdar samkvæmt upplýsingum á merkimiðanum. Gættu þess alltaf að lesa leiðbeiningarnar og fara vandlega eftir þeim. Alltaf ætti að taka tillit til eftirfarandi setninga og táknmynda (sem verða á umbúðum sápu og hreinlætisvara frá október 2005).
Geymið þar sem börn ná ekki til.
Forðist að efnið fari í augu. Ef það gerist, skolið vandlega með vatni.
Skolið og þurrkið hendur eftir notkun.
Fólk með viðkvæma eða skaddaða húð ætti að forðast langvarandi snertingu við efnið.
Neytið ekki. Ef efnisins er neytt skal leita ráða hjá lækni.
Skiptið ekki um ílát til að geyma efnið.
Blandið ekki með öðrum efnum.
Loftræstið herbergið eftir notkun.
Setjið innihald endurfyllingar aðeins í upphaflegt ílát.